Skilmálar

ALMENNIR SKILMÁLAR

Líkami & Boost tekur enga ábyrgð á innsláttarvillum eða röngum upplýsingum sem birtar eru á vefnum. Þá eru meðtalin verð og vörulýsingar. Líkami & Boost áskilur sér rétt til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Öll verð í netverslun eru með virðisaukaskatti (VSK) sem er annars vegar 11% fyrir fæðubótarvörur og hins vegar 24% fyrir aðrar vörur.

TRÚNAÐUR

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

NOTKUN Á PERSÓNUUPPLÝSINGUM

Sendingar úr kerfi netverslunar kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir vefverslunnarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsingar.

AFHENDING OG AFGREIÐSLA VÖRU

Afhending vöru fer einungis fram með póstsendingu og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Líkami & Boost ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Líkami & Boost ehf. áskilur sér einn virkan dag til að afgreiða pöntun og koma til Íslandspósts. Ef vara er uppseld getur afgreiðslutími verið allt að 10 virkir dagar. Haft verður samaband við viðkomandi viðskiptavin ef fyrirséð að afgreiðslutími standist ekki.

Einstaka smávörur eru undanskildar fríum póstsendingum nema ákveðið magn sé keypt eða þær keyptar með öðrum vörum. Á vöruspjaldi fyrir slíkar vörur kemur það fram.

Líkami & Boost sendir pantanir frítt heim þar sem það er í boði annars er það á þitt pósthús og gildir það eingöngu innanlands á Íslandi. Pantanir sem berast fyrir kl. 15:00 virka daga berast yfirleitt viðtakanda næsta virka dag.

Líkami & Boost sendir pantanir erlendis líka en fyrir það er greitt sérstaklega og er farið eftir gjaldskrá Póstsins við útreikninga á verði fyrir sendinguna.

Líkami & Boost áskilur sér rétt til að afgreiða ekki pöntun ef vara er uppseld, og eða breyting verður á verði og vöruframboði. Viðskiptavinur fær þá endurgreitt eða getur valið sér aðra vöru.

AFSLÆTTIR OG TILBOÐ

Afslættir gilda ekki með öðrum tilboðum. Í netverslun gildir afsláttarkóði ekki á tilboðsvörur. Það er aldrei frí heimsending á afsláttarvörum eða tilboðum fyrir utan afsláttinn sem meðlimir netklúbbsins hafa.

SKIL EÐA SKIPTI Á VÖRUM

Skilaréttur er 14 dagar að því tilskildu að vara sé ónotuð, henni skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki vera búið að rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Ef verðbreytingar verða á vöru á þessum 14 dögum er hún tekin til baka á gildandi söluverði þann dag sem vara var keypt, þó ekki á hærra verði en upprunalegu verði vörunnar.

HÖFUNDARRÉTTUR OG VÖRUMERKI

Allt efni á netsíðum Líkama & Boost, eins og texti, grafík, lógó, hnappar, táknmyndir, myndir og hugbúnaður er eign Líkama & Boost.

LÖGSAGA OG VARNARÞING

Komi til málshöfðunar milli kaupanda og seljanda um túlkun á skilmála þessa, gildi þeirra og efndir skal reka það fyrir Héraðsdómur Reykjaness. 

UPPLÝSINGAR UM SELJANDA

NafnLíkami & Boost ehf.
HeimilisfangFlugvallarvegur 701, 235 Reykjanesbær
Sími571 7001
Netfanginfo@likamiogboost.is
Kennitala610408-1410
VSK númer97783

Síðast uppfært 6. mars 2020

Sjá einnig upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga